a Pendejo & Bjartmar

 

Pendejo & Bjartmar
 

 
Listafélagid til forna og Baddi F.
 
 
   
 
fimmtudagur, maí 15, 2003


 

Grillveður!

Það var sko ekki slæmt veðrið sem blasti við mér þegar ég steig út úr síðasta prófinu mínu í morgun, glampandi sól og sankölluð blíða. Í dag ættu allir að vera úti í sólbaði, borðandi barnaís með dýfu eða með kokteil í hönd, hlustandi á glymjandi surf tónlist. Jæja ég ætla að setjast út.

Prófum hjá mér lokið er
mikið er ég glaður

Hver vill botna?

þriðjudagur, maí 13, 2003


 

Kondu með á sumardjamm FM!

Ég biðst velvirðingar á þessum mistökum. Nú er hægt að smella á myndina sem segir smellið hér. Ég vil sérstaklega biðja Gísla afsökunar á þessu sem ég veit að er yfir sig spenntur að komast á sumardjamm FM957 í sumar. PPPPPPPPRRRRRRR!


 

Í sambandi við myndina hér að neðan. Á henni stendur skýrum stöfum :"Smelltu hér" og blikkar svona líka æpandi á mig. Nema hvað að ég smelli og smelli en ekkert gerist. Mætti halda að hann Ernir sé að reyna að afvegaleiða lesendur góða eða hvað? Hvað hefur þú þér til málsbóta?


 

djamm.ari.is

Heimasíðan www.ari.is bíður upp á vefsíðulén með endingunni .ari.is. Það gæti til dæmis verið blogg.ari.is, nigg.ari.is og klepp.ari.is en mér til mikillar undrunar og ánægu var ekki búið að panta lénið djamm.ari.is. Nú eru jú til djamm.is og reykjavik.com og fleiri, fleiri síður tileinkaðar djömmurum en engum hefur dottið í hug að fá hafa slóðina sína djamm.ari.is. Ég skora á alla alvöru djammara sem ætla að fara að opna djammaraheimasíðu að fá sér þetta lén.

mánudagur, maí 12, 2003


 

Erfiðara er gert en sagt
að fá sér smá að dúndra.


 


Ég vil byrja á því að biðja alla afsökunar á því að ég henti óvart út grein sem ég skrifaði hérna í gærdag. Það voru alger mistök. En allavega þá vil ég bara vekja athygli ykkar á því að næstu nætur, það er að segja aðfaranótt þriðjudags, aðfaranótt miðvikudags, aðfaranótt fimmtudags og kannski aðfaranótt föstudags verða Hvalfjarðagöngin lokuð. Lokunin er vegna almenns viðhalds eins og hreinsun, málun miðlína og lagfæring lýsingar í göngunum. Ekki er enn komið á hreint hver mun mála göngin en miklar líkur eru á því að hinn heimsfrægi vegmálari Ernir Miðlína Eyjólfsson muni vera annar þeirra.

sunnudagur, maí 11, 2003


 

Það er svo undarlegt
með unga menn.
Í ungum stúlkum þeir
verða bálskotnir enn.


 

Halló, halló?
Á ég að dúsa einn hérna?


 

You´ve got to watch them be quick og be dead.

 

 
   
  This page is powered by Blogger, the easy way to update your web site.  

Home  |  Archives