a Pendejo & Bjartmar

 

Pendejo & Bjartmar
 

 
Listafélagid til forna og Baddi F.
 
 
   
 
miðvikudagur, maí 21, 2003


 

Aðskilnaður

Fjandans prófin fyrir bý,
feginn ligg ég leti í.
Allt er orðið aftur gott
og aldrei fæ ég nóg af því.

Fyrir liggja fyllerí,
Föroyjabjór og Campari.
Sjaldan vont að súpa er
og seint mun ég fá nóg af því.

Lengi höfum við lifað í,
listafélags kompaní,
aðskilnaði og ætla ég
að allir hafi nú nóg af því.


Þannig að, hvenær eigum við að hittast?

þriðjudagur, maí 20, 2003


 

Gleðilegan Þriðjudag.

Vertu velkominn Bjartmar og til hamingu með það að vera að fara að leiðbeina ungu fólki í sumar, hversu kaldhæðnislegt sem það er.
Nú eins og allir áhugamenn um íslensk jarðgöng vita þá voru hvalfjarðargöngin máluð síðustu nótt og var það enginn annar en ég sem málaði þau. Þannig að næst þegar þið akið þar í gegn þá skulið þið taka eftir hversu glæsilega þau eru máluð. Að vanda þá pissaði ég inni í þeim og fyrir þá sem vilja vita hvar þá pissaði ég um það bil 100 metrum frá því sem göngin verða þrjár akreinar. Betra að hafa svona hluti á hreinu.
Ég hef ákveðið að setja upp svona vegmálarablogg sem verður svona hliðarbloggur eddieskimo.blogspot.com. Áhugasamir vegmerkingarmenn geta þá fylgst með mér í sumar á ferðu um landið og á höfuðborgarsvæðinu. Verður bloggurinn á formi eins og dagbók vegmálarans var hugsuð (þeir sem muna eftir henni).

 

 
   
  This page is powered by Blogger, the easy way to update your web site.  

Home  |  Archives