Það er eitt sem mér finnst alger synd. Það er hvað hann Bjartmar O. Þ. A. H. K. er óduglegur við að blogga.
Yfirskriftin á bloggnum hans hljómar svo : "Hver Nennir Að Hlusta Á Röflið Í Mér" (að vísu vantar þar spurningamerki). Svarið við þessari spurningu er einfalt: Enginn!
Þar með er ekki sagt að maður vilji ekki lesa röflið sem uppúr honum vellur.
Legg ég til að þar geri Bjartmar bragabót á.
Ég vil líka kvarta yfir dræmum skrifum á ogbjartmar.blogspot.com.
Nú er Ernir sá eini sem hefur löglega afsökun til að blogga ekki, þar eð hann dvelur úti á landi, fjarri alneti og siðmenningu.
Guðmundur A. hefur líklega ekki ennþá vitneskju um tilvist netsins, fyrst hann býr líka í sveit og Páll E. er eins og allir vita liðleskja og ónytjungur og hefur t.a.m. ekki uppfært sinn eigin blogg svo mánuðum skiptir.
Það erum því við sem eftir sitjum sem erum tilneyddir til þess að halda uppi merkjum félagsins.
Að lokum velti ég fram fyrriparti:
Ef ég ætti eitthundrað
og átta milljón krónur,
(takið eftir því að þetta er stuðlað)
- Gísli Sverrisson,
12:08
Mig langaði bara að segja lítið bless við alla. Er að fara í burtu og kem ekki aftur fyrr en í kringum 17 júní. Bæ!
...og víst hef ég fundið náttmör. Við á sebri vængnum látum sko ekki að okkur hæða.
- Gísli Sverrisson,
19:50