a Pendejo & Bjartmar

 

Pendejo & Bjartmar
 

 
Listafélagid til forna og Baddi F.
 
 
   
 
þriðjudagur, september 02, 2003


 

Vel mælt!

Bjartmar hefur komist vel að orði og þau orð hafa mikið gildi. Nú hefur hann Páll fengið netaðgang og farinn að stíga í takt við tímann. Þó svo að hann sé kannski upptekinn háskólanemi þá ætti hann nú að geta gefið gamla listafélaginu til forna eilítinn gaum og ritað nokkur orð á síðu þess. Að minnsta kosti hefur hann ritað nokkrar greinar nílega á sinn eigin blogg, nema þá að hann sé og góður fyrir annað (ég hef nú alltaf talið Pál vera auðlyngspilt svo því á ég nú bágt með að trúa). Ég hef þó ekki trú á því að Guðmundur hafi nokkurn tíman farið inn á veraldarvefinn.

Ég mun á næstu viku opna skemmtanamiðstöðina Skúrinn aftur og þá hyggst ég halda tvöfalt partí fyrir Pendejo og Bjartmar (innflutningspartí í herbergið mitt og enduropnunarpartí skúrsins) sem ætti að verð næstu eða þarnæstu helgi.

Brátt verður frost á Fróni

 

 
   
  This page is powered by Blogger, the easy way to update your web site.  

Home  |  Archives