a Pendejo & Bjartmar

 

Pendejo & Bjartmar
 

 
Listafélagid til forna og Baddi F.
 
 
   
 
mánudagur, september 15, 2003


 

Laufin falla úr hverju tré.
Að mér gerir spjátrungur spé.
Sumarástin fær sér hlé.
Hvað ætli geimurinn gamall sé?
Hvern ætli best sé að bera á fé?


 

Hum... Var að lesa síðustu grein og datt svolítið sniðugt í hug í sambandi við það og skrifaði svona comment á hana, en svo fattaði ég að ég get skrifaði inn á þessa síðu. Ákvað því að láta þessi örfáu orð frekar hér en þar, þó þau séu aðalega þar.

Nokkru orð um greinina hér á undan:
Vá! Ef ég væri bilaður á geði þá gæti ég sett saman eitthverja brjálaða smsæriskenningu úr öllum þessum staðreyndum. Sem betur fer er ég ekki brjálaður á geði og ættla því ekki að gera það.

sunnudagur, september 14, 2003


 

Það er rétt, þetta er líklega meikið. Kom ég sjálfum mér ekkert svo mikið á óvart þarna. Ég var bara nákvæmlega eins og ég hefði ímyndað mér mig sem 17 ára menntaskólakjána. Vísu orðinn 18 þá.

Var að velta ýmsu fyrir mér:

Páll Eiríkur er sá eini í Pendejo sem hefur millinafn.

Fyrir ári síðan vorum við allir í sama skóla, en núna eru bara Gummi og Palli í sama skóla, ef svo mætti kalla.

Ég og Arnar erum þeir einu sem getum um frjálst höfuð strokið í kvennamálum.

Ég hef aldrei verið með stelpu.

Arnar verður brátt sá eini sem á ekki bíl, því að í bígerð er að græja sænskan eðalvagn handa Erni.

Ég er yngstur og jafnframt lágvaxnastur.

Gummi er ekki hávaxnastur.

 

 
   
  This page is powered by Blogger, the easy way to update your web site.  

Home  |  Archives