a Pendejo & Bjartmar

 

Pendejo & Bjartmar
 

 
Listafélagid til forna og Baddi F.
 
 
   
 
föstudagur, október 24, 2003


 

Ég spái magnaðri drykkju á Laugardag. Reyndar getur ekkert annað komið til greina þegar jafn glæsilegur hópur af drykkjumönnum og stuðboltum kemur saman. Þó mun fjarvera Ernis örugglega hafa einhver áhrif á gleðina og pottþétt ekki vera til góðs. En við munum þó reyna eftir fremsta megni að skemmta okkur sveittir saman. Sem er svolítið ógeðslegt að við ætlum að hittast vinirnir til að geta setið þétt upp við hvorn annan, mjög sveittir í litlu herbergi. Ölvun gæti losað um einhverjar hömlur með hrikalegum afleiðingum. Ég hef það eftir öruggum heimildum að einn aðili hópsins, eða tveir jafnvel hafi mjög gaman af því að reka vinum sínum einn mjúkann þegar ölvun sækir að. Ég gef engin nöfn upp en þeir vita þetta best sem við á.
Annars er ég að fara að horfa á Stúdentaleikhúsið í kvöld og síðan hyggst ég drekka ölið, endilega látið mig vita ef þið ætlið að gera hið sama svo maður geti hitt á ykkur. Reyndar ekki Gumma því að hann drekkur bara sinn mjöð og fer upp í Heiðmörk að blóta guðina einsog sönnum fornmanni sæmir.

Páll


 

Ég verð því miður að afboða komu mína í gufupartí hjá Arnari. Ég er að fara í smá útskriftarhóf af tilefni útskriftar (hum...segir sig sjálft) svo þið verðið bara að djamma tvöfalt meira...híhíhíhíhíhíh. Ég átti þó að tilkynna Pendejo og Bjartmari að við værum velkomin til Guggu4me þannig að ég hitti ykkur sennilega bara þar (nema eina manneskju...hum).

Í gær hittist helmingurinn af okkur út í skúr...hvar var hinn?

miðvikudagur, október 22, 2003


 

Þetta eru undur og stórmerki! Það hafa aldrei, að ég held verið skrifaðar svona margar greinar á svo stuttum tíma hérna á síðunni frá upphafi. Nú skora ég á Guðmund að skrifa einn stuttan pistil...og hvað varð um Arnar? Ég held að Páll haf fengið einhverja hugljómun þegar hann var út í Kína og loksins tekist að komast inn á pennalistann hérna. Hvað er að gerast? Ohhh...ég er svo glaður að ég get eigi líst því með orðum né hljóðum en ef ég gæti lýst því með hljóðum þá væri það hljóð eins og þegar Harrison Ford klappaði Chuwaka á kollinn einhverstaðar í einhverri af Star Wars-myndunum og loðveran gaf frá sér eitthvert óútskíranlegt unaðshljóð.


 

Ég er loksins kominn með aðgang að þessu helvíti. AÞð var mikið
Guðmundur, sá er oft er kenndur við Neandertalsmanninn lætur ekkert sjá sig þrátt fyrir það að vera kominn með háhraðatengingu í boði háskólans. Heyrst hefur að Guðmundur hafi ærst þegar hann kveikti fyrst á tölvunni sinni og fleygt henni fyrir björg. Taka verður tillit til þess að Guðmundur er aðeins nýlega fluttur í siðmenninguna eftir að hafa eytt uppvaxtarárum sínum í torfkofa á Vestfjörðum þar sem hann deildi rúmi með aldraðri frænku sinni og tveimur sauðkindum af Þorvaldsstaðarkyni.

mánudagur, október 20, 2003


 

Það var lítið Bjartmar!

 

 
   
  This page is powered by Blogger, the easy way to update your web site.  

Home  |  Archives