a Pendejo & Bjartmar

 

Pendejo & Bjartmar
 

 
Listafélagid til forna og Baddi F.
 
 
   
 
föstudagur, október 31, 2003


 

Tilkynning frá Páli

Sælir félagar.
Það er af sem áður var að maður hringdi ég félagana til að kanna landslag helgarinnar. Nú fer þetta allt fram í gegnum netið, msn eða blogg. Maður er orðin einsog versti Bill Gates sem greinilega átti við sjúklega feimni að stríða og fann sér stað bakvið tölvuna, þar sem hann réði og gæti gert það sem hann vildi. En nóg af vitleysunni.
Nú verður Brynja ein heima um helgina og hyggjum við á drykkju. Það verður einhver drykkja í kvöld, Föstudag og öllum boðið að kíkja, það er ætlast til þess að menn hafi öl við hönd. Síðan er stefnt á stærri gleði og merkilegri annað kvöld með vonandi einhverjum hópi fólks og að sjálfsögðu býst ég við að sjá félaga mína úr listafélaginu þar ofurölvi.

Peace Brothas

þriðjudagur, október 28, 2003


 

Nú hef ég látið bannerinn góða inn á síðuna mína og ættlast ég til að fá 100 kr frá vefstjóra þessarar síðu fyrir hvert auka hit sem hún fær á dag í þann tíma sem bannerinn er uppi. Tel ég þetta mjög rausnarlegt af mér að rukka ekki meyra þar sem vinsældir síðunnar munu örugglega fjórfaldast einnig þar sem ég bjó til þennan banner.

Gísli þú munt fá reikningsnúmerið mitt sent í pósti og ég vil fá lista yfir öll hitin.

sunnudagur, október 26, 2003


 

Þá er kominn Sunnudagur og helginni fer senn að ljúka. Það var helvíti gaman í gær. Reyndar saknaði ég Ernis, sem lét svo sjá sig seinni hluta kvöldsins. Sáttastur er ég samt við nektarhlaupið okkar drengjanna. Reyndar eru sumir meiri kellingar en aðrir, nefni engin nöfn. Ég mæli með að þetta verði gert að reglulegum viðburði hjá Pendejo og Bjartmari. Við þurfum bara að byggja upp smá saunuþol og þá munum við sitja heilu dagana í gufunni og drekkum öl

 

 
   
  This page is powered by Blogger, the easy way to update your web site.  

Home  |  Archives