Árni er líka með okkur, eða telst það með að hann situr úti í horni og er að fitla við sjálfan sig? jú við skulum telja hann með.
Við sitjum hérna helveti góðir ég og Gísli og horfum á Nirvana tónleikaupptökur. Vorum að horfa á einhver risaöryggisvörð berja Kurt Cobain. Aldrei myndi maður þora að berja Kurt Cobain á tónleikum fyrir framan fullan sal af fólki. En Gísli er botnlaus brunnur viska þegar kemur að Nirvana fræðum og sagði mér það að þetta var rétt áður en þeir urðu nógu frægir. Síðan fylgdu nokkrir góðir gullmolar um Kurt vin okkar og ruglið sem hann var í.
Ekki er ´85 vikan núna! Er þá ekki ballið á fimmtudag? Er ekki stemmari fyrir að skella sér á ballið? Eða er ég bara frekar sorlegur aumingi sem áttar sig ekki á að gömlu dagarnir eru liðnir og að ég sé bara orðinn gamall ræfill sem enginn vill sjá á menntaskólaböllum lengur?
En ég er hrifin af áætlunum Ernis varðandi Tiki-barinn og ætla að leggja pening til hliðar svo að gamli draumurinn getir ræst. Og varðandi gufubaðið, þá vil ég líka koma fyrir legubekkjum þarna svo að við félagarnir getum notið ásta á þegar að ölvun og sviti sækir á mann. Auðvitað mun ég ekki taka þátt í því en kannski Arnar og Gísli, þeir eru hrifnir af svona

Mundi allt í einu eftir
tikibarnum sem er á
hawaii skyrtuheimasíðunni og fór að leita að þessu aftur og fann út að þetta er ennþá til sölu á $2,495.00. Ég fór að spá hvort við ættum ekki að stofna reikning sem við leggjum allir inn á 2000 kr á mánuði til þess að kaupa svona tiki bar og láta gamlan draum rætast. Maður mundi nú ekki hata það?