a Pendejo & Bjartmar

 

Pendejo & Bjartmar
 

 
Listafélagid til forna og Baddi F.
 
 
   
 
miðvikudagur, nóvember 12, 2003

Það heitir 80’s, ekki 85
 

Það heitir 80’s, ekki 85.

Ég er sko ekkert sár en ég hefði sko alveg verið til í að spila á þessu balli sem er á morgun. Það er sko ekki þess vegna sem ég er ekki að fara en ég nenni því samt ekki. Þetta ball getur greinilega verið án minnar tónlistalegu nærveru. Það eru greinilega mikið færari súðar sem spila tónlist af geisladiskum eða jafnvel af ferðatölvum, hver veit. Ég vildi bara láta vita af þessu. Hélt nefnilega að ég þekkti einhvern þarna í stjórn nemendafélagsins.

Þetta titilkerfi er ekki alveg að virka. Á maður að reyna að kippa því í lag og aðeins að kippa í hann í leiðinni.

Guðmundur A.! Þú sagðist hafa komist inn á MSN messenger...hvert er auðkenni þitt? Og Arnar...þú átt eftir að senda mér hópmyndirnar af okkur.

mánudagur, nóvember 10, 2003

Sumarhúsaferð
 

Ég verð nú bara að segja að þessi einnar nætur sumarhúsaferð hafi verið nokkuð góð og sérstaklega samtalið okkar Palla í pottinum, þó svo að ég muni lítið um hvð þær voru. Páll ég verð að segja að eins innilegar samræður hef ég ekki átti í langan tíma. Síðan hafði ég líka ofsalega gaman í ölæði mínu að mata fólk, vonandi að gaffallinn minn hafi ekki meitt neinn.



Bjartmar búinn að láta klippa sig. Ég frétti að hann hefði ekki skilið Nýsjálendinginn og því þurft að benda á mynd af Tom Hanks í slúðurtímariti. Útkoman var víst fáránlega góð og hefur drengurinn ekki verið svona vel klipptur síðan á Benidorm.

 

 
   
  This page is powered by Blogger, the easy way to update your web site.  

Home  |  Archives