Drykkja í kvöld?
Sælir félagar. Ég sá það hérna fyrir neðan að ernir var mjög óánægður með viðbrögð okkar við spurningu hans um kvöldið í gær. Skítt með það. En hins vegar krefst ég svara varðandi kvöldið í kvöld. Er ekki bara góð drykkja hjá öllum? Ég býst við að Gummi verði sofandi á borði á Ara í Ögri með fimmtuga listakonu uppá arminn, Arnar verður í "góðra" vona hópi á Der Boomkikker, Ernir í trans á Astró með hinum módelunum, Gísli fullur í bíl á leið úr æfingahúsnæðinu og Baddi heima að horfa á Video. Er þetta ekki svona nokkuð rétt hjá mér?
En endilega segið mér hvað þið ætlið að gera í kveld
Hvað er í vændum?
Hvað er málið að gera í kvöld strákar? Ég ætla allavega að skjótast í ríkið á eftir og kaupa mér eina eða tvær kippur af besta bjór í heimi...sem kemur aðeins einu sinni á ári í rúman einn og hálfan mánuð (það er að segja ef hann selst ekki upp of snemma). Jú, ég er að tala um Jóla Tuborg. Vonandi er hann eins góður og mér fannst hann ver í fyrra. Allavega, þá varpa ég fram spurningunni aftur: Hvað á að gera í kveld?
Hana nú. Búinn að taka út linkinn inn á síðuna hans Arnars, arnar.belja.is vegna þess að þá slóð á Arnar Pendejo ekki lengur heldur bara eitthver annar aulaArnar.