Stórhátíðarhöld á föstudaginn
Það tilkynnist hér með að föstudaginn næstkomandi mun verða haldin veisla mér til heiðurs að heimili mínu, Mosgerði 12, í Reykjavík. Hvet ég þá sem vettlingi geta valdið að mæta um klukkan 20:00 og samgleðjast mér á þessum merku tímamótum í mínu merkilega lífi.
Svo er það rúsínan í pulluendanum:
Hljómsveitin Vipera mun stíga á stokk í fyrsta sinn í meira en ár og afhjúpa glænýja gleðimúsik.
Hljómsveitina skipa þeir Ragnar, Haukur og Hannar ásamt hljómborðsleikaranum Emil, sem nýlega gekk til liðs við hljómsveitina.
Myndatökur eru vel þegnar en blóm og kransar afþakkaðir.
Pendejo menn eru sérstakir heiðursgestir og hvattir til að taka maka sína með sér í boðið.
Spurningum verður svarað í athugasemdadálki.
Ritað þann 13. desember á því herrans ári 2003
- Gísli Sverrisson,
21:35