Svívirða og skömm
Sælir félagar. Langt er síðan ég páraði eitthvað á þennan vef og biðst ég velvirðingar á því. En það sem mér liggur á hjarta er nokkuð sem ég lenti í um daginn. Þá var ég að ræða við ónefndan aðila og samtalið snérist að afmælisveislunni hans Gísla. Ég sagði þessum aðila að Pendejo væru sérstakir heiðursgestir og hélt síðan stutta lofræðu um Listafélagið og afrek þess. An það sem síðan koma frá þessum aðila snýst sagan um. Þegar lofræðunni var lokið segir þessi aðili við mig orðrétt ,, ohhhh, það er svo sniðugt að hafa svona nafna á saumaklúbbinum". SAUMAKLÚBBUR!!!! PENDEJO ER ENGIN SAUMAKLÚBBUR!!! Öskraði ég og sló aðilan utan undir áður en ég hrækti vænni tóbaksslummu framan í hann. Að ímynda sér að Pendejo væri Saumaklúbbur er eitthvað sem fólk ætti að láta ógert. Innan fárra hópa er jafn mikið Testosteron flæði og einmitt hjá Pendejo. Listafélagið sem að mínu mati er ímynd karlmennskunnar á ekki að þurfa að sitja undir svona ásökunum og mæli ég með því að ef þið heyrið eitthvað svipað einhverntíman aftur þá leiðréttið þið viðkomandi og látið hann svo finna fyrir því svo það gleymist aldrei. Lengi lifi karlmenn, lengi lifi Pendejo