a Pendejo & Bjartmar

 

Pendejo & Bjartmar
 

 
Listafélagid til forna og Baddi F.
 
 
   
 
fimmtudagur, janúar 15, 2004


 

Nú bíð ég og ef til vill fleiri eftir svari frá Páli Eiríki hvort hann samþyki dagsetningu sem ég hef neglt niður á Árshátíð Pendejo og Bjartmars. Ég held að þú ættir að sjá sóma þinn í að koma með það svar svo meðlimir félagsins fari ekki að kalla þig fleiri illum nöfnum en nú eru komin (deli, dusilmenni, liðleskja og letingi eru þau ósómaorð).

Ennþá hef ég ekki ákveðið neina tímasetningu né útbúið neina árshátíðardagskrá fyrir skemmtunina en þau mál fara von bráðar að skírast. Ég þigg allar góðar ráðleggingar í sambandi við þetta kveld og hvernig sé hægt að hátta því. Ég hef nú ákveðið að titla mig sem formann og eina meðlim árshátíðarnefndar Pendejo og Bjartmars.

Fyrir hönd árshátíðarnefndar Pendejo og Bjartmars
Ernir Eyjólfsson, formaður.

þriðjudagur, janúar 13, 2004


 

Drengir!

Hvernig líst ykkur á að Árshátíð Pendejo og Bjartmars verði haldin hátíðlega, laugardaginn 7 febrúar? Ég vildi helst fá svör sem fyrst svo að ég geti fest dagsetninguna á þessu. Takk!

 

 
   
  This page is powered by Blogger, the easy way to update your web site.  

Home  |  Archives