Jæja, jæja. Það varð nú ekki mikið úr þessum fundi. En það skiptir ekki máli því ég (undirritaður) og Arnar ákváðum í sameiningu lauslega dagskrá sem ég svo setti meira saman á formlegan máta. Hér hendi ég því upp drög að dagskrá árshátíðardags Pendejo og Bjartmars:
12:00 – 14:00. Inkaupaferð fyrir árshátíðina. (ATH! Ekki allir meðlimir félagsins þurfa eða verða að vera viðstaddir).
14:00 – 15:00. Sánubað hjá Arnari. Þeir sem eru ekki bílandi geta ef til vill fengið sér einn öl.
15:00 – 16:00. Hlaupið verður árbæjarhlaup á sundskílum frá Arnari og niður í Árbæjarlaug til að skola af sér svita og hvíla enn betur í heitum pottum.
18:30 – 21:00. Árshátíðarmatur Pendejo og Bjartmars.
21:00 - ?. Kareokikeppni Pendejo og Bjartmars 2004
Verðskrá fyrir árshátínia:
Áfengi: 2000 – 2500 kr
Matur: 1000 – 1500
ATH! Verðskrá hefur ekki verið fullkomlega reiknuð svo henni skal taka með fyrirvara.
Nú hef ég rætt við tvo meðlimi félagsins og leist þeim báðum vel á að ég (undirritaður) myndi sjá um að elda matinn. Því miður er ekki hægt að grilla þar sem heimilisgrillið er nú orðið heldur lélegt og erfitt að grilla svo ég tek ekki áhættu með slíkar hundakúnstir. Ef þið viljið hafa áhrif á matarmálin skulið þið hafa samband við undirritaðan.
Nú vil ég fá annaðhvort samþyki eða athugasemdir í sambandi við þessa dagskrá og þessar hugmyndir til þess að það sé hægt að ganga frá þessu sem fyrst. Og munið að kvenmenn eru algerlega bannaðir frá þessari fagnaði
Ernir Eyjólfsson, formaður árshátíðarnefndar Pendejo og bjartmars.
Verða ekki bara fundarhöld í kvöld. Látið orðið berast.