Jæja. Þá er árshátíðin yfirstaðin. Margt skemmtilegt gerðist og var góður matur borðaður, þó ég segi sjálfur frá. Verður þetta að árlegum viðburði megum við vona þó svo að ekki verði allir atburðir þessarar árshátíðar endurteknir. Förum ekki nánar út í það!!!
En nú er komið að skuldadögum og var heildarkostnaðurinn 6810 kr. Þannig að hver og einn ykkar skuldar mér 1135 kr. Best þætti mér að peningurinn yrði lagður beint inn á reikning hjá mér en ekki ætla ég að gefa upp númerið á honum hérna heldur talið þið bara við mig annaðhvort á MSN eða í gegnum síma.
Einnig vil ég tilkynna nokkra óskilamuni sem einhverjir aðilar skildu eftir hérna hjá mér. Það eru föt (skyrta, gallabuxur, peysa og hermannajakki) og ein stafræn canon myndavél.
Ernir Eyjólfsson, formaður árshátíðarnefndar Pendejo og Bjartmars.