Eftir langa umhugsun og rannsóknarvinnu hef ég komist að þeirri niðurstöðu að Bjartmar var í raun og veru ekki að segja niðrandi orð um mig heldur varpaði hann einfaldlega (eða kannski ekki svo einfaldlega, dæmi hver fyrir sig) fram spurningu sem ég mátti að sjálfsögðu svara mér til varnar. Því hef ég ákveðið að biðja Bjartmar afsökunar á þessari heiftarlegu reiði minni í hans garð og bið ég einnig alla aðra meðlimi félagsins afsökunar á þessum úlfalda sem ég gerði úr mýflugunni (myndlíking). Ég vona að meðlimir og þá sérstaklega Bjartmar getir fundið það í hjarta sínu að fyrirgefa mér.
Ykkar (vonandi) virðingafyllsti:
Ernir Eyjólfsson
Ég skal ætla sko bara að hafa það á hreinu að ég líð ekki að félagar mínir kalli mig kúk og hvað þá að kalla mig kúk á almannafæri. Að svo stöddu beini ég þessu aðeins til Bjartmars sem á harkalegan hátt spurði hvort ég væri kúkur hérna í skilaboðaskjóðu síðustu færslu sem Arnar skrifaði. Ég vona að ég þurfi ekki að reiðast ykkur hinum á þennan hátt og að þið séuð siðaðir menn sem kalla ekki félaga sína óyrðum eins og kúkur. Ekki eins og siðleysinginn hann Bjartmar sem vafrar um netið og kallar fólk og félaga kúk út um hvippinn og hvappinn.
Að lokum vil ég mynna ykkur sem eigið eftir að borga mér á að borga mér 1135 kr.