Landsþing Pendejo & Bjartmar
Hér með legg ég til að við Pendejomenn skipuleggjum nú sumarbústaðaferð í vor, einhverntímann eftir próf. Árshátíðin tókst svona líka ljómandi vel og miðað við velsæmið við það tilefni, gæti sumarbústaðaferð orðið ansi skemmtileg. Það eru jafnvel sénsar á því að Bók Almennings muni verða með í för og verður þá hægt að kveða mann og annan í kútinn jafnt og að rita frásögn ferðarinnar. Hér gætum við, með hjálp ýmissa lyfja og drykkja, tekið fyrir hin ýmsu mál og mótað skoðanir félagsins á því.
Ef þið eruð ekki einskis nýtar liðleskjur, ritið þá niður þær helgar sem ykkur gætu hentað, í lok maí, eða byrjun júní.
Framkvæmdarstjóri Pendejoflokksins,
Gísli Sverrisson
Nemi
- Gísli Sverrisson,
10:16