Hvor er eldri?
Vegna þeirra deilna sem hafa átt sér stað hef ég ákveðið að gera óformlega könnun hérna á síðunni. Nú leyfir netkunnátta mín mér ekki að setja upp alvöru könnun svo að ég ætla að biðja menn um að svara í kommentdálknum. En það sem mig langar að vita er einfaldlega hvor fólki finnst vera eldri, Gummi fertugi eða Baddi Flasa a.k.a sextugi a.k.a Dauði. Guðmundur hefur fyrir löngu fengið á sig nafnbótina Fertugi sökum bridds´og grillkunnáttu, isusu troopersins og hundsins. Hann hefur fyrir löngu viðurkennt þetta og tekur þessu vel. En uppá síðkastið hefur Baddi Flasa elst um a.m.k 40 ár en þvertekur fyrir það. Helstu rök fyrir þessum fullyrðingum er t.d. hversu hrakandi Bjartmari hefur farið sem drykkjumanni. Maðurinn var þekktur fyrir helgarlanga drykkjutúra með Levisævintýrum og fleiri góðum hlutum. En þessa dagana liggur hann frekar uppí í rúmi með Video en niðri í bæ með bjór. Þetta er auðvitað eitt helsta einkenni öldrunar að minnka drykkju. Ekki má gleyma því að Baddi kallaði sjálfan sig öldungin í sjónvarpi frammi fyrir alþjóð og hefur því nánast viðurkennt sök.
En kjósið nú, hvor er eldri Baddi eða Gummi og hversvegna?