Ég er ekki nógu ánægður með þessi kvennaafskipti af síðunni okkar undanfarið. Síðan sem hingað til hefur verið athvarf okkar félaganna er núna undirlögð af kvennaáróðri og rauðsokkuhjali. Persónulega þá gruna ég Bjartmar um að hafa verið að auglýsa síðuna okkar hjá einhverjum af hugsandi vinkonum sínum sem er ekki sama um ástandið í heiminum í dag og eru þessvegnar stútfullar af niðurbældri reiði í garð karlmanna sem þær telja vera undirrót alls ills. Púff!! þetta var löng setning.
Ég mæli með að við leggjum niður vopnin og konurnar venji sig af heimsóknum hingað sem fyrst. Þeim líkar ekki það sem þær lesa hér og við viljum ekki hafa þær svo að allir hljóta að vera sáttir.