a Pendejo & Bjartmar

 

Pendejo & Bjartmar
 

 
Listafélagid til forna og Baddi F.
 
 
   
 
fimmtudagur, september 09, 2004


 

Hvernig líst ykkur félögum á smá Pendejo ölvun um helgina. Nu vill svo heppilega til að kvendýrið verður úti annað kvöld(föstudagskvöld) og alveg tilvalið að nokkrir dólgar safnist saman á Bergstaðarstræti og helli sig fulla. Nú veit ég fyrir víst að bæði Arnar og Gísli geta komið enda annar þeirra atvinnulaus og hinn í fríi. Gummi er háskólapési og því til alls líklegur og Eddi er iðjuleysingi og ætti auðvelt með að rífa sig lausann til að verða sér og okkur hinum til skammar. Bjartmar þarf víst að vera í felum því að rússnensk stjórnvöld eru víst búin að setja 75 milljónir króna til höfuðs honum svo að ég geri ekki ráð fyrir honum dólgnum atarna.

Hvað segiði?



miðvikudagur, september 08, 2004


 

Bjartmar = Hryðjuverkamaður?

Ég hef mikið velt því fyrir mér hvort að það gæti nokkuð verið að Bjartmar hafi staðið fyrir hryðjuverkaárásinni í Rússlandi um daginn. Nú hef ég ekki séð kallinn í marga daga og í þau skipti sem hann hefur látið heyra í sér hefur mér alltaf fundist vera hálfgerður langlínubragur á símtalinu. Getur verið að Bjartmar sé kominn í slagtog við Mashkadov og félaga í Téténíu og sé loksins að fá draum sinn uppfylltann um að koma af stað byltingu?

Síðan var kallinn líka kominn með svo góðann lubba og hýjung síðast þegar ég vissi en það er auðvitað nauðsynlegt til þess að barbararnir í Téténíu taki mark á þér. Er það ekki einmitt skítlegt eðli Bjartmars að ráðast á fólk þar sem það finnur mest til og alveg eftir honum að velja sér börn sem skotmark.

Síðan sáu nú allir hvernig þetta endaði, algert klúður einsog svo margar áætlanir Bjartmars í gegnum tíðina. Hver man ekki eftir lygavefnum sem hrundi á einu kvöldi, sögunum af Deep Blue Sea og Blair Witch að ógleymdum rúntum Bjartmars um borgina án ökuskírteinis sem enduðu með hörmungum.

mánudagur, september 06, 2004


 

Hingað og ekki lengra!!

Það er af sem áður var að meðlimir Pendejo voru taldir hin mestu hreystimenni og tákngerving karlmennsku nú á tímum jafnréttis og almenns kerlingavæls. En sú var nú tíðin. Í dag einkennist þetta fornfræga félag af liðleskjum og ræflum. Ekki man ég eftir að hafa séð neinn ykkar Pendejo félaga skammarlega ölvaðan á opinberum vettvangi í háa herrans tíð og krefst ég þess hér með að bót verði gerð á. Ernir er sá eini sem ég hef séð með berum augum mjög ölvaðan, ég hef heyrt af Arnar og Guðmundi ofurölvi einhversstaðar úti í bæ og til að gæta sanngirnis ætla ég að taka þær sögur trúanlegar.

En hvar eru Gísli og Baddi? Það er löngu vitað að Baddi er hin mesta liðleskja og kerling enda búinn með sinn skammt einsog hann sagði sjálfur. Þá hefur þú nú fengið eitthvað minni skammti úthlutað en við hinir Bjartmar minn. Einnig er það að frétta af Gísla að ekkert hefur sést til hans svo mánuðum skiptir og engar eru heldur sögurnar af honum. Gæti það verið að Gísli sé kominn í sama vídeóbullið og Bjartmar var og er í? Ætli Gísli sé "búinn með sinn skammt"? Ég hlæ að ykkur.

 

 
   
  This page is powered by Blogger, the easy way to update your web site.  

Home  |  Archives