Jólahlaðborð/drykkja Pendejo og Bjartmars.
Sú hugmynd hefur komið upp að halda jólahlaðborð/drykku Pendejo og Bjartmars einhvern tímann á milli jóla og nýárs. Reyndar eru þetta einkar óheppileg jól hvað drykkju varðar sökum þess að helgarnar vantar. En við erum karlmenni og getum alveg drukkið á virkum degi. Nú mæli ég með því að við ákveðum dag og staðsetningu og allir og þá meina ég ALLIR(þú líka Baddi) fái sér frí í vinnunni daginn eftir og fagni jólunum í ölæði með félögum sínum. Nú eiga allir að segja í commentdálkinn hvað myndi henta þeim best og við komumst að niðurstöðu.
Að lokum vil ég árétta það að við skulum gera allt sem við getum til þess að koma í veg fyrir að sódómísk hegðun líkt og átti sér stað síðast endurtaki sig. Ölvun er vel liðin en fylgifiskar hennar verða takmarkaðir eftir fremsta megni. Ég geri mér grein fyrir að þessari áskorun er aðallega beint gegn mér og lofa ég því að ég mun taka hana alvarlega. Þess má að lokum geta að ég Páll Eiríkur er í aumingjafríi öll jólin og er því opinn fyrir öllum möguleikum.