Preshot on Pleasure
Ég mun á laugardaginn næstkomandi bjóða til hóflegs afmælishófs og Pendejo meðlimum þar með forskot á sælu komandi jólagleði. Mun ölvunin fara fram að heimili mínu, Mosgerði 12. Eru þar allir sómamenn velkomnir eftir kvöldmatarleyti. Þegar á líður mun ég svo í reiðiskasti vísa öllum gestum á dyr og fylgja þeim svo niður í bæ og eyða þar óhóflega miklum peningum.
kveðja,
Gísli, 21 árs.
- Gísli Sverrisson,
19:56
Þrátt fyrir dræma þáttöku meðlima Pendejo og Bjartmar er næstum því komin niðurstaða í málinu. Það liggur fyrir að dagarnir 27 og 28 desember henta öllum. Ber þó að hafa í huga að Ernir virðist ekki hafa áhuga á því að virða okkur viðlits. Annað mál á dagskrá er staðsetning. Arnar hefur gefið í skyn við mig í óformlegu spjalli að hugsanlega getum við haldið gleðina á heimili hans. Það opnar á annan möguleika sem er sauna og verður rætt síðar. Ég mæli með að við eldum sjálfir matinn, annaðhvort að allir koma með eitthvað eða þá bara karlmannleg stemmning í eldhúsinu. Einnig hafa komið fram hugmyndir þess efnis að panta mat.
Nú legg ég málin undir lokaatkvæði og krefst svara frá öllum félögum.
Hvort viljið þið frekar 27 eða 28 Desmber?
Hvernig á eldamennskan að fara fram? Eldamennska eða pöntuð?
Samþykkja ekki allir heimili Arnars ef að hann leyfir?
Bjartmar skal drekka romm í kók og verða dólgur?