Eymingjar?Hvað er eiginlega að verða um Pendejo og Bjartmar? Arnar boðar til gæðadrykkju á heimili sínu og við það hlaupa allir í felur. Menn skulu mæta heim til Arnars og drekka, annað er eymingjaskapur og ekki sönnum dólgum sæmandi. Okkur Arnari er skítsama þótt að menn þykist ætla að drekka á Föstudaginn, við erum 21 (sumir 22) og ættum alveg að geta drukkið tvo daga í röð. Þeir sem þykjast þurfa að vinna skulu bara láta sjá sig eftir vinnu og mæta þunnir daginn eftir. Ég segi hingað og ekki lengra með þennan eymingjaskap, sýnið hvaða dólgur býr í ykkur og mætið í ofurölvun heim til Adda á Laugardaginn.